2. júní

Norðurorka efndi  til ljóðasamkeppni meðal grunnskólabarna á þjónustusvæði sínu í Eyjafirði nú í maímánuði.  Þema ljóðasamkeppninar var „VATNIГ. Keppt var í þremur flokkum, (I) nemendur í 1. til 4. bekk, (II) í 5. til 7. bekk og (III) í 8. til 10. bekk.

Um níuhundruð ljóð bárust frá nemendum fimmtán grunnskóla á starfssvæðinu.  Dómnefndin valdi þrjú ljóð í hverjum flokki til fyrstu, annarra og þriðju verðlauna en veitti auk þess auka verðlaun fyrir nokkur ljóð til viðbótar.

Það er skemmst frá því að segja að tveir nemendur frá okkur unnu til verðlauna: Mikael Ásgerirsson var í öðru sæti með í flokki II, með ljóðið „Regn“ og Árni Kristinsson var í fyrsta sæti í III flokki með ljóðið „Þorsti“. Og fengu þeir afhent verðlaun frá Norðurorku á skólaslitum.

Til hamingju með þennan árangur strákar.

Regn
Regnið
streymir
niður úr
himninum.
Fyrir Afríkubúa
sending frá guði.
Fyrir okkur sem
sjálfsagt veðurbrigði.

Mikael Ásgeirsson – 6. bekk Hríseyjarskóla

Þorsti
Hvar er ég?
Hvernig komst ég hingað?
Eina sem ég veit er
að sólin hefur þurrkað allt,
nema einn lítinn poll.
Þessi pollur var svo kaldur,
tær og svalandi.
Þetta ferska vatn
náði að svala þorsta mínum
í þessari heitu eyðimörk.

Árni Kristinsson – 8. bekk Hríseyjarskóla 

 

Skólaslit föstudaginn 27. maí kl 16:00 á sal skólans.

 

Er  einhver í okkar skóla sem á skilið að fá viðurkenningu fyrir framúrskarandi skólastarf?    Nú er tækifæri til að tilnefna. 

Viðurkenning skólanefndar fyrir framúrskarandi skólastarf

Samkvæmt skólastefnu Akureyrarbæjar skal árlega, veita þeim einstaklingum eða stofnunum sem skarað hafa fram úr í skólastarfi viðurkenningar. Markmiðið er að vekja sérstaka athygli á því sem vel er gert og hvetja þá sem fyrir valinu verða til þess að halda áfram því góða starfi sem þeir eru að vinna og jafnvel gera enn betur. Viðurkenning er einnig staðfesting á að viðkomandi skóli/kennari/nemandi er fyrirmynd annarra á því sviði sem viðurkenning nær til.

Skólanefnd hefur frá árinu 2010 veitt einstaklinum og/eða stofnunum sem skarað hafa fram úr í eftirtöldum tveimur flokkum viðurkenningar, við hátíðlega athöfn. Skólanefnd ákveður fjölda viðurkenninga ár hvert að fenginni tillögu valnefndar.

Skólar/Kennarahópar/Kennari

Foreldrar, nemendur, kennarar, skólar og bæjarstofnanir geta tilnefnt verkefni í skóla til viðurkenningar. Tilnefna má nýbreytniverkefni um hvaðeina í skólastarfi sem unnið hefur verið að á yfirstandandi skólaári, nemendavinnu, vinnu hópa eða einstaklinga, upplýsingamiðlun (s.s. heimasíður og fréttabréf), stefnumótun og skipulag, starf eins kennara eða samvinnu þeirra, verkefni í almennri kennslu, sérgreinum eða sérkennslu, framlag annars starfsfólks skólans, forvarnarstarf, félagsstarf eða foreldrasamstarf.

Nemendur.

Skólar setja sér reglur um það hvaða nemendur þeir tilnefna til viðurkenninga og senda til valnefndar. Tilnefningar eru óháðar aldri. Viðurkenningu má veita fyrir góðan námsárangur, góðar framfarir í námi, virkni í félagsstarfi, að vera jákvæð fyrirmynd, sýna frumkvæði eða leiðtogahæfileika, frábæra frammistöðu í íþróttum eða listum, listsköpun eða tjáningu í skólastarfi, félagslega færni, samskiptahæfni og framlag til að bæta eða auðga bekkjaranda/skólaanda, nýsköpun og/eða hönnun.

Þessi samþykkt nær til allra leik-, grunn- og tónlistarskóla sem Akureyrarbær rekur eða styrkir.

Tilnefningar berist rafrænt í  maí ár hvert. Viðurkenningar verði afhentar í lok skólaársins og verður tímasetning auglýst í maí ár hvert.

Valnefnd verður skipuð einum fulltrúa úr skólanefnd, einu foreldri sem tilnefnt er af Samtaka og foreldrum leikskólabarna og einum fulltrúa frá Skólaþróunarsviði HA. Fræðslustjóri er starfsmaður valnefndar.

 

28. apríl Matseðill fyrir maí

04.04.2011 Matseðill fyrir apríl

21. mars 2011 Nýjar myndir

2. mars 2011 Nýr matseðill

 

2. febrúar.  Loksins eru komnar nýjar myndir inn á síðuna.

 

2. febrúar. Nýr matseðill

21. janúar.  Í dag fögnum við þorra og höldum þorrablót á sal skólans frá kl 17:00- 19:00 fyrir nemendur og kennara. 

7. janúar Skólahald fellur niður í dag í Hríseyjarskóla (Grunn og leikskóla) vegna veðurs og ófærðar.

 

3. janúar 2011.

Matseðill fyrir janúar

Gleðilegt ár og bestu þakkir fyrir það liðna

Skóli hefst að nýju 4. janúar 2011 kl. 8:00

 

1. des. Matseðill fyrir desember

16. nóvember. Foreldrakaffi í dag í Íþróttamiðstöðinni kl. 16:30, allir velkomnir.

28. okt. Matseðill fyrir Nóvember

Nýjar myndir undir myndahnappnum hér til hliðar.

4. október. Nýr matseðill

 

30. sept. Vil minna á starfsdaginn á morgun.  Frí í skólanum.

30. sept. Nokkrir lögðu á sig að labba gönguleiðina og skoða myndir sem unnar voru í útikennslutíma. Þessi vísa var skrifuð í gestabókina uppi við háborð. 

Ljúft er mér að ganga þessa leið.

Listaverkin gleðja hug og hjarta.

Ég áfram held, því gatan heim er greið.

Glampar sól og enginn þarf að kvarta.

Myndirnar hafa verið teknar niður.

 

20. sept. Nemendur í útikennslu fóru gönguleiðina í dag, þau unnu sjálfsmyndir sem þau hengdu upp við háborðið, einnig hengdu þau upp myndir í hjallana.  Þau vilja hvetja alla til að fara gönguleiðina og líta á sýninguna, gestabók er á báðum stöðum og er fólk beðið um að kvitta.

 

 

 

 

8. sept. 

Á morgun hefst "göngum í skólann"og stendur til 6. október. Á því tímabili munum við leggja mikla áherslu á að nemendur og starfsmenn komi gangandi eða hjólandi  til og frá skóla. Á lokadegi verkefnisins verður  boðið upp á göngudag skólans. Tökum þátt og virkjum okkur sjálf.
 

8. sept.  Í dag er alþjóðlegur dagur læsis, af því tilefni ætla nemendur skólans að vera með upplestur í ferjuferðum kl. 9:00, 11:00 og 13:00.

1. september Nýjar myndir frá skólaleikum.

   Nýr matseðill fyrir september.

24. ágúst 2010 Matseðill fyrir ágúst kominn inn.

19.ágúst 2010.

Skólasetning verður mánudaginn 23. ágúst kl.14:00 á sal skólans.

Kennsla hefst kl 08:00 þriðjudaginn 24. ágúst.

 

18.ágúst 2010 Innkaupalistar hafa verið sendir heim í tölvupósti.

Skoðið hvað er til frá fyrra ári og nýtið það.

Dagatal fyrir skólaárið 2010 - 2011

 

2. júní
Þökkum kærlega fyrir góðan vetur. Njótið sumarsins.
Myndir frá skólaslitum.
 


31. maí
Skólaslit verða á sal Hríseyjarskóla klukkan 16:00 í dag mánudag.
Allir velkomnir. Foreldrafélagið mun bjóða gestum upp á grillaðar pylsur að lokinni athöfn.

Við óskum nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars og minnum á að skólasetning verður 23.ágúst.

Myndir úr skólaferðalagi 2010

6. maí
Nemendur í 7. og 8. bekk Hríseyjarskóla tóku þátt í verkefninu reyklaus bekkur á vegum Lýðheilsustöðvar. Í umræðum og vinnu sem fram fór í tengslum við verkefnið komu unglingarnir fram með þá hugmynd að skrifa þingmönnum þjóðarinnar bréf og leggja til að gera Ísland að reyklausu landi. Þau sátu ekki við orðin tóm og viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa þar sem 25% þingmanna hafa þegar svarað bréfinu, þar af 2 ráðherrar. Þrír þingmenn hafa boðað komu sína til Hríseyjar í tengslum við málið ásamt því að það hefur ratað inn á borð fréttamiðla, bloggara og fésbókarritara.

Hér má lesa bréfið.

3. maí
Hríseyjarskóli endurheimti skólabikarinn í 1. maí hlaupi UFA. 78% nemenda tók þátt í hlaupinu fyrir hönd skólans. Töluverður áhugi er fyrir hlaupum og frjálsum íþróttum í skólanum. Þetta er í annað sinn sem skólinn tekur þátt í hlaupinu og sigrar. Hafrún Rós Þórisdóttir náði 2. sæti í sínum flokki og Friðrik Ingimarsson lenti í 3 sæti. Frábær árangur og til hamingju. 

Bréf sem nemendur eldri deildar Hríseyjaskóla sendu á alþingismenn og á helstu fréttaveitur landsins vegna verkefnisins Reyklaus bekkur á vegum lýðheilsusstöð.

Nýr matseðill

26. apríl
Löng hefð er fyrir því að halda árshátíð Hríseyjarskóla á sumardaginn fyrsta. Á árshátíðinni sýna nemendur skemmtiatriði sem þau hafa lagt mikla vinnu við að undirbúa og bjóða gestum að sjá afraksturinn. Allir eru velkomir á árshátíðina en aðgangseyrir og kaffisala rennur í ferðasjóð nemenda.
Í ár tóku allir nemendur þátt í uppsetningu á Dýrunum í Hríseyjarskógi sem var staðfært og yfirfært á mannlífið í eyjunni okkar. Nemendur æfðu verkið undir stjórn Aðalsteins Bergdal leikara. Búninga og leikmynd sáu nemendur sjálfir um. Einn nemandi sýndi töfrabrögð og galdraði fram mikla spennu og magnað andrúmsloft. Stelpur úr skólanum sýndu kennaratískuna í ár en hún þykir mjög smekkleg. Skólahópurinn úr leikskólanum sýndi leikþátt um Litla ljóta andarungann og söng og nemendur í tónlistarnámi spiluðu nokkur lög. Kynnar árshátíðarinnar voru úr nemendahópnum. Það er álit allra að árshátíðin hafi verið mjög glæsileg að þessu sinni. Skreytingar voru unnar af nemendum skólans og leikskólans en þemað náði út um allt m.a. í skólablaðið Hrís, sem kom út fyrir árshátíðina og í auglýsingaspjöldin. Ljúffengar kökur voru bakaðar af foreldrum. Allir nemendur tóku virkan þátt í undirbúningi og framkvæmd og er enginn í vafa um hversu mikið nám fer fram á svona dögum. Þeir sem ekki treystu sér í stór hlutverk á leiksviðinu voru virkari í blaðaútgáfu, að sinna skreytingum, sjá um leikskrá og að vinna þau verk sem þarf þegar haldin er 100 manna árshátíð. Eftir viðburð sem þennan gera nemendur sjálfsmat til að leggja mat á eigin frammistöðu og til að koma fram með skoðanir sínar á því hvernig þeim fannst takast til. Samkvæmt því mati skemmtu allir sér mjög vel og lögðu sig alla fram við að gera sem best.
   

23. apríl Gleðilegt sumar
Nú stentur yfir samsýning nemenda í grunnskólum Akureyrar Glerártorgi. Þema sýningarinnar er fuglar og frelsi. Allir nemendur grunnskóladeildar Hríseyjarskóla eiga verk á sýningunni. Sýningin mun standa í viku.

Aðgangur ókeypis.
16.apríl
Nú standa yfir æfingar fyrir árshátíð. Verið er leggja lokahönd á útprentun á skólablaðinu Hrís sem kemur út 20. apríl. Nemendur munu ganga í hús þann dag og selja skólablaðið sem kostar 1000 kr og miða á árshátíðina sem haldin verður 22. apríl . Aðgangseyrir er 500 kr og kaffi og með því 750 kr, allt til styrktar ferðaskjóð nemenda. Sjáumst hress, allir velkomnir.

13.apríl
Myndasögur úr útikennslu. Yngri deild samdi þessar frábæru sögur og vann með myndirnar.

9.apríl
Nú stendur yfir undirbúningur fyrir árshátíð skólans. Við erum byrjuð að lesa yfir handritið en núna á að ráðast í að sýna valda kafla úr Dýrunum í Hálsaskógi, töluverður metnaður í gangi. Í tengslum við árshátíð er gefið út skólablað og nú vinna nemendur að því að skrifa greinar, sögur og safna öðru efni í blaðið. Árshátið skólans verður haldin á sumardaginn fyrsta 22. apríl.
9.apríl Nýr matseðill
25. mars
Páskafríið byrjar á morgun. Nemendur mæta aftur samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 7. apríl.
Myndir úr stórskemmtilegri skíðaferð nemenda Hríseyjarskóla í Hlíðarfjall. Nemendur stóðu sem sig frábærlega en við fengum mjög góðar móttökur í fjallinu og ekki spillti veðrið fyrir, sól, blíða og renni færi.

Nú um helgina, 20. og 21. mars, er komið að samsýningu grunnskólanema í Grunnskólum Akureyrar í Hofi, nýja menningarhúsinu. Þema sýningarinnar er fuglar og/eða frelsi. Allir nemendur grunnskóladeildar Hríseyjarskóla eiga verk á sýningunni. Sýningin verður opin frá klukkan 13.00 til 17.00 báða sýningardagana.
Aðgangur ókeypis.

Risa listaverk á skólalóð Hríseyjarskóla.
Nemendur yngri deildar útbjuggu listaverk í snjóinn í útitíma í dag. Verkið heppaðist frábærlega. Myndin hér að neðan sýnir aðeins lítið brot af myndinni.

1. mars
Matseðill fyrir mars.

22. febrúar
Nýjar myndir.
Nú stendur yfir námsmat í skólanum en samhliða því störfum við í þemaverkefnum tengdum stærðfræði, eðlisfræði, fjósinu og listum.

18. febrúar
Í dag fimmtudag byrjaði námsmat og þemadagar í Hríseyjarskóla. Nú verður þemað mjög fjölbreytt; eðlisfræði, listasmiðja, stærðfræði og vinna í fjósinu. Við hlökkum til að geta sýnt ykkur myndir og sagt frá þessum viðburðum. Leiðarljós annarinnar er VIRÐINGIN sem fléttast inn í allt okkar starf. Núna erum við að skoða hvernig við berum virðingu fyrir okkur sjálfum og hversu mikilvægt það er.

Nýjar myndir úr útikennslu.
 
16. febrúar
Á morgun, öskudag er skipulagsdagur í grunnskóladeild Hríseyjarskóla.
Nemendur eru minntir á kötturinn verður sleginn úr tunnunni klukkan 11 við búðina og öskudagsball hefst klukkan 15:30 í íþróttahúsinu. Það kostar 300 kr inn á ballið.
Námsmat og þemavika byrjar á fimmtudaginn og stendur í fimm dag eða fram á miðvikudag.  

Matseðill fyrir febrúar.

25. janúar 2010
Nemendur og kennarar Hríseyjarskóla fögnuðu þorra á viðeigandi hátt á bóndadaginn.  Karlpeningur skólans sýndi karlmennsku sína með því að hlaupa berir að ofan tvo hringi í kringum skólans. Um kvöldið var þorrablót í skólanum. Fluttur var annáll í máli og myndum, leikin leikrit farið í leiki og skemmt sér fram eftir kvöldi. Mjög vel heppnaður dagur.

6. janúar 2010
Gleðilegt ár og bestu þakkir fyrir það liðna.
Einhverjir hafa kannski tekið eftir því að skólinn okkar í Hrísey ber nú nýtt nafn, Hríseyjarskóli. Það nafn var formlega tekið í notkun um áramót. Undir Hríseyjarskóla starfa tvær deildir, grunnskóladeild og leikskóladeildin Smábær. Nokkuð er síðan skólarnir voru sameinaðir en í vetur hefur verið unnið markvissar að auka samvinnu og samstarf þeirra. Þessi sameining kallar á einhverjar breytingar t.d. voru foreldrafélögin sameinuð í vor. Skólastjóri Hríseyjarskóla er áfram Þórunn Arnórsdóttir og deildarstjóri leikskóladeilarinnar Smábæjar er Ingibjörg Björnsdóttir.  

Matseðill fyrir janúar.

17. desember
Jólaundirbúningur í Grunnskólanum er í fullum gangi. Búið er að skreyta allt hátt og látt, skera út laufabrauð, sækja jóltré upp á ey og föndra.  Litlu jólin eru á föstudaginn og eru gestir velkomnir klukkan 13:30.  Skóli hefst aftur eftir jólafrí 5. janúar samkvæmt stundaskrá. 

 

17. nóvember

Hér koma nokkrar myndir frá Alþjóðlegu athafnavikunni í Hrísey:

16. nóvember
Í vikunni framundan er margt að gerast í Grunnskólanum í Hrísey. Það stendur yfir námsmat fyrstu tvo tímanna en í stað þess að halda síðan áfram í hefðbundið námsefni eftir prófin eru nemendur að vinna dýrgripi úr drasli sem safnað hefur verið.  Myndir af því sem nemendur hafa skapað birtast á morgun á vefnum.
Eldri nemendur kynntu ljóð Steins Steinarrs fyrir yngri nemendum í tilefni af degi íslenskrar tungu.
10. nóvember
Á morgun 11. nóvember verður haldinn rafmagnlaus dagur í grunnskólanum í Hrísey. Á þeim degi stefnum við að því að neita okkur um öll þægindi sem rafmagnið veitir okkur.  Það verður skemmtilegt að sjá hvernig hægt er að halda úti kennslu án tölvu, ljósritunarvélar, ljóss og klukku.
Við erum safna allavegna umbúðum og rusli fyrir athafnavikuna sem byrjar á mánudaginn. Þá ætla nemendur að breyta rusli og drasli í verðmæti. Nú stendur yfir meðal eldri nemenda hönnunarsamkeppni á stól sem stendur til að umbreyta. 

Myndir úr útikennslu.

Nýr matseðill
27. október
Ljóð í laug
 

Undanfarna daga hafa nemendur í Grunnskólanum í Hrísey unnið að verkefninu ljóð í laug. Þá sömdu nemendur og myndskreyttu ljóð sem tengdust hafinu á einhvern hátt. Ljóðin plöstuðu nemendur og afhentu starfsmanni Íþróttamiðstöðvarinnar í Hrísey við hátíðlega athöfn í skólasundi. Ljóðin verða öllum sundlaugargestum til yndisauka í heita pottinum næstu daga. Er það von okkar að sem flestir njóti. 
 


Myndir úr útikennslu.

2.okt
Nýr matseðill.

23. september
Í dag var farið í útikennslustundinni að taka upp kartöflur. Uppskeran var því miður ekki nógu góð en við skemmtun okkur við vinnuna. Þegar allt var komið upp fengu allir sér kakó. Myndir af nemendum

18. september
Nýjar myndir frá haustinu.

8. september
Göngum í skólann hefst á morgun 9. september og mun standa í tvær vikur. Á því tímabili munum við leggja mikla áherslu á að nemendur og starfsmenn komi gangandi, hjólandi eða á annan virkan hátt til og frá skóla. Á lokadegi verkefnisins munum við bjóða upp á göngudag skólans. Tökum þátt og virkjum okkur sjálf.

3. september
Viðbragðsáætlun Grunnskólans í Hrísey við heimsfaraldri innflúenslu.
Markmið áætlunnar er að tryggja skipulögð og samræmd viðbrögð allra skólastofnanna og starfsmanna þeirra þegar til inflúensufaraldurs kemur.
(sjá viðbragðsáætlun

Til foreldra vegna inflúensu faraldurs. Hér

Nýr matseðill fyrir ágúst/sept.

Um skólaleikanna
Sú hefð hefur skapast hjá okkur í Grunnskólanum í Hrísey að byrja  skólaárið á skólaleikum. Þá er nemendum skipt upp í 3- 4 lið þvert á aldur. Elsti nemandi hópsins er liðsstjóri.  Keppt er í mjög óhefðbundnum greinum s.s. stígvélakasti, ólsen ólsen, folfi, berjatínslu, blómatínslu og greiningu, spurningkeppni og grettukeppni.  Aðrar mjög krefjandi greinar voru t.d. rífa í búta og m². Í ár var hörð keppni milli liðanna en samvinna og samstaða einkenndi þó vinningsliðið.  Liðið vann sem einn maður og uppskar sigur.  Einn daginn var farið með nemendur út í vitaferð og annar dagur var leikjadagur.  Allt er þetta hugsað til að styrkja vinabönd og leyfa nýjum  nemendum að blandast  hópnum.

26. ágúst
Nú stendur yfir hörð keppni í Ólsen Ólsen en hún er ein keppnisgreinanna á Skólaleikunum í ár. Keppni er lokið í stígvélakasti, folfi, m², berjatínslu og rífa í búta. Ólokið er grettukeppni, spurningakeppni og boðhlaup. 

Á morgun mun stríðsöxin grafin og hópurinn allur skunda út í vita og eiga þar stund saman. Myndir frá skólaleikum eru hér.

Nýtt skóladagatal er komið inn á heimasíðuna.

20. ágúst

Nú hafa innkaupalistar verið sendir heim í tölvupósti. Skoðið hvað til er heima og í skólanum. Hittumst hress og kát á skólasetningu. (athugið að skólaleikar verða í fyrstu vikunni).

Kveðja Hjördís Ýrr

16. ágúst
Skólasetning verður í Grunnskóla Hríseyjar 24. ágúst klukkan 14.


 

 

Skólaslit voru í Grunnskóla Hríseyjar föstudaginn 29. maí. Tveir nemendur voru útskrifaðir úr grunnskólanum og óskum við þeim velfarnaðar í framtíðinni. Einn nemandi var útskrifaður úr leikskólanum og mun hann hefja nám í haust við grunnskólann. Karolina Domanska fékk viðurkenningu fyrir dugnað og hugrekki í vetur. Nemendur leikskólans sungu nokkur lög. Skólinn fékk afhentan grænfánann í þriðja sinn og var nýjum fána flagga í lok athafnar. Við óskum nemendum og foreldrum ánægjulegs sumars. Sjáumst hress í haust.  Myndir frá skólaslitum eru hér.
 
Á aðalfundi foreldrafélaganna sem haldinn var 26.mai var samþykkt sameining foreldrafélags grunnskólans og leikskólans. Samþykkt voru ný lög fyrir félagið og ný stjórn kjörin. Hana skipa, Bára Steinsdóttir, Theódóra Kristjánsdóttir og Hjördís Ýrr Skúladóttir. Í varastjórn sitja Kristinn Árnason, Ingibjörg Guðmundsdóttir og Hermann Erlingsson. Nýja stjórnin tók strax til starfa. Lög félagsins má sjá hér.


Nýjar myndir frá vordögum.


Á morgun, fimmtudaginn 28.mai, er síðasti skóladagurinn þennan veturinn. Felix lögga kemur og skoðar hjól og hjálma. Við ætlum að setja niður kartöflur og grilla. Nemendur verða því að mæta klæddir til útiveru og á hjólum. Eftir hádegi verður útiíþróttir.

Skólaslit og vorhátíð!

Grunnskólanum í Hrísey verður slitið

föstudaginn 29. maí 2009

kl. 16:00 í skólanum

Foreldrar og aðrir velunnarar skólans velkomnir til að skoða handverk nemenda og gæða sér á grilluðum pylsum í boði foreldrafélagsins.

---------------------------------------------------------------------------------------

Myndir af Frjálsíþróttamóti Narfa sem haldið var í Hrísey 30.apríl. 25 keppendur á aldrinum 8- 14 ára tóku þátt mótinu. Segja má með vissu að þetta sér fyrsta innanhússmót í fjálsumíþróttum sem haldið er í Hrísey. Keppt var í hástökki, langstökki, þrístökki og kúluvarpi. Auk þess var boðhlaup milli liða. Keppendur fengu sér pizzu í lok keppni og einhverjir gistu í Sæborg. Við þökkum keppendum og þjálfurum þátttökuna.

Umhverfisnefnd Grunnskólans í Hrísey bíður íbúum Hríseyjar á súpufund í hádeginu 6. maí.  Sérstök áhersla verður á umhverfismerki auk kynningar á útikennslu. Sjáumst hress.

Matseðill fyrir maí.

Síðast liðinn föstudag tóku nemendur skólans þátt í árlegu skólahlaupi UFA. Skólinn fékk bikar fyrir frábæra þátttöku. 14 nemendur af 17 tóku þátt.

Í dag 4. maí fjölgaði nemendum í grunnskólanum um 2 en það er um 12 % fjögun. Við bjóðum þær Sunnevu og Tönju velkomnar .
 
24. apríl
Myndir frá ÁRSHÁTÍÐINNI.

17. apríl
Árshátíð grunnskóla á sumardaginn fyrsta!!

Fögnum sumarkomu með viðeigandi hætti og höldum árshátíð!! Allir velunnarar skólans eru hjartanlega velkomnir. Nemendur og starfsmenn skólans hafa öll lagt sig fram við að gera hátíðina veglega og glæsilega.Dagskráin hefst klukkan 14. Venju samkvæmt verður kaffisamsæti að dagskrá lokinni.

Skólablaðið Hrís kemur út á mánudaginn. Í því eru sögur, ljóð og greinar eftir nemendur. Blaðið er skreytt fjölda teikninga eftir nemendur.

Tryggið ykkur eintak :) 

14. apríl
Sund byrjar á morgun, miðvikudag. Yngri nemendur byrja í sundi klukkan 8 eldri klukkan 9.

Nýr matseðill fyrir apríl.

19. mars
Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk var haldin síðastliðinn mánudag. Keppendur voru 13 talsins frá öllum skólum Akureyrarbæjar. Aldís Greta Bergdal keppti fyrir hönd Grunnskólans í Hrísey. Hún náði þeim frábæra árangri að lenda í 3. sæti. Óskum Aldísi til hamingju með frábæran árangur.
 
9. mars
Nemendaráð grunnskólans tekur að sér snjómokstur fyrir eyjaskeggja gegn vægu gjaldi til styrktar ferðasjóð nemenda. Tökum á móti pöntunum í síma 4661763.


Matseðill fyrir mars

27. febrúar
Nú er námsmat í fullum gangi það stendur fram á miðvikudag.


23.febrúar
Öskudagsball
Íþróttahúsinu Klukkan 16:00
500 kr inn Nammipoki + svali
Verðlaun fyrir frumlegasta búninginn og flottustu þrjá.
Sjáumst hress.
Heitt á könnunni fyrir fullorðna.  

9.febrúar
Kynningarfundur verður haldinn um breytingar á leiðsagnamati mánudaginn 16.febrúar klukkan 16:30 auk þess verður farið í ýmis mál er varða skólahaldið. Mikilvægt er að allir foreldar mæti.

Foreldrakaffi verður miðvikudaginn 11.febrúar.
Skemmtunin hefst klukkan 17:15 og verður í íþróttahúsinu að þessu sinni. Allir velkomnir.

6. febrúar Dagur stærðfræðinnar
Í tilefni dagsins var í gær haldinn stærðfræðiveisla í Grunnskóla Hríseyjar. Nemendur gátu valið úr 23 verkefnum sem öll tengdust þema dagsins, þríhyrningum, á einhvern hátt. Nemendur bjuggu til mynstur, mældu, lituðu, klipptu, léku sér og lærðu stærðfræði allan morguninn. Það var álit næstum allra þátttakenda að dagurinn hafi verið skemmtilegur og þau hafi lært mjög mikið.

Nýjar myndir frá bóndadegi.
Matseðill fyrir febrúar.

Þorrablót grunnskólans í Hrísey er á föstudaginn, 23. janúar. Blótið stendur frá 17-19.

Frjálsíþróttaæfingar eru klukkan 16 þriðjudögum. Allir krakkar velkomnir. 

8. janúar. Breytingar á gjaldskrá Akureyriarbæjar í skólamötuneyti.

Síðdegishressing pr. dag 61 krónur
Áskrift í mötuneyti pr. máltíð 307 krónur

7. janúar Lestrarátak hófst hjá yngri deild í morgun. Fjölbreytt verkefni tengd lestri.

Nokkur atriði sem ber að hafa í huga í sambandi við lestur.
- Lestur er undirstaða alls náms og þess vegna er mikilvægt að hlúa vel að honum.
- Árangur í lestir barna batnar ekki nema með sífelldri þjálfun.
- Jákvæður stuðningur foreldrar er mikilvægur.
- Heimalestur alla virka daga.
- Mikilvægt er að börnin lesi sér til ánægju. Þá er gott að fara á bókasafnið og velja bækur eða lesa bækur sem til eru heima.

Gleðilegt ár og takk fyrir samstarfið á gamla árinu.

 Jólaleyfi hefst 19. desember. Nemendur mæta aftur í skólann eftir jólafrí þriðjudaginn 6.janúar samkvæmt stundaskrá.
Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Takk fyrir ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða.

Föstudaginn 19. desember eru litlu jólin í skólanum og jólaball. Nemendur mæta klukkan 13 með frjálst nesti og litla pakka en foreldrar og aðrir sem vilja skemmta sér á jólaballinu með okkur mæta klukkan 14.

15.desember. Nemendur og kennarar fóru í morgun að sækja jóltré upp á ey. Nýjar myndir frá því, laufabrauðsgerð og tarsanleiknum hér.

5. desember. Það er enginn samdráttur í byggingariðnaði í Hrísey. Byggð eru raðhús og einbýlishús, allir taka þátt!  Kíkið á myndirnar  

2. desember. Nýr matseðill fyrir desember

Sunnudaginn 30.nóvember klukkan 14 verður jólaföndur í grunnskólanum. Allir velkomnir.

Föstudaginn 21. nóvember er skipulagsdagur í skólanum. Þann dag fellur niður kennsla.

Fimmtudaginn 6. nóvember er foreldrakaffi í grunnskólanum. Þar munu nemendur sýna nokkur atriði. Boðið verður upp á léttan kvöldverð sem nemendur útbúa. Mæting er klukkan 16:30. Allir velkomnir.

Opinn borgarafundur um ný skólalög

Menntamálaráðherra boðar til opins borgarafundar um ný skólalög á Akureyri 5. nóvember kl. 20:00-22:00 í Kvosinni, Menntaskólanum á Akureyri
Fundarstjóri verður Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri

Fundurinn er opinn borgarafundur á vegum menntamálaráðuneytisins til kynningar á nýrri menntalöggjöf fyrir skólafólk, foreldra, nemendur og annað áhugafólk um skólamál.  Menntamálaráðherra og sérfræðingar menntamálaráðuneytisins sjá um kynninguna og svara fyrirspurnum og standa fyrir opinni umræðu að erindum loknum. Er hér um einstakt tækifæri að ræða til að ræða við ráðherra um þær miklu breytingar sem nú er verið að gera á íslenska menntakerfinu.

4. nóvember. Nýr matseðill

27. október er alþjóða-bangsadagurinn haldinn hátíðlegur um allan heim. Yngri deild mætti með bangsa, mældi þá og gerði ýmis verkefni tengd þeim.   

Vissir þú:
*   að fyrsti bangsinn er kenndur við Theodo
r Roosevelt  fyrrverandi forseta Bandaríkjanna ?
*   að ísbirnir éta ekki mörgæsir ?
*   að fullvaxta björn vegur um 800 kg?


24.október. Myndir úr skauta og keiluferð.

16. október. Grein frá Grunnskóla Hríseyjar var birt í vefritinu Skólaakur.

16. október. Lögreglan minnir fólk á fíkniefnasímann. Númerið er 8005005. Hægt er hringja í númerið ef grunur um fíkniefnamisnotkun er að ræða.

Fimmtudaginn 16. október eru samræmd próf í 4. og 7. bekk í íslensku.
Föstudaginn 17. október eru samræmd próf 4. og  7. bekk í stærðfræði.

6. október Nýjar myndir

30. september
Matseðill fyrir október er kominn inn.

Skipulagsdagur kennara er föstudaginn 26. september. Þann dag fellur kennsla niður.

 

Skólaslit

Grunnskólanum í Hrísey verður slitið miðvikudaginn 30. maí kl. 17 í kirkjunni.

Að því loknu verður gengið fylktu liði upp í skóla þar sem leikskólabörn stíga á stokk, gestum gefst kostur á að skoða afrakstur vinnu nemenda í vetur og við fáum afhentann Grænfána no. 2. Húrra fyrir okkur!

Foreldrafélögin bjóða uppá grillaðar pylsur

Allir velkomnir

 

28. ágúst 2008
Búið er að setja inn matseðil fyrir ágúst og september, skóladagatal fyrir 2008-2009 og nýjar myndir.

26. ágúst 2008
Þá er fyrsti skóladagurinn liðinn! Skólaleikarnir hófust í morgun og er mikil keppni milli liða.
Keppnisgreinarnar í dag voru; Folf, ratleikur og mannhnútur. Á morgun er keppt í boðhlaupi og berjatínslu.

20.ágúst 2008
Skólasetning fer fram í skólanum 25. ágúst kl. 14.
Innkaupalistar hafa verið sendir á mentor.

28. maí 2008

Skólaslit, sýning og vorhátíð 29. maí kl. 18:00

Minnum á skólaslitin, vorhátíð leikskólabarna og sýningu grunnskólabarna á morgun fimmtudag kl 18:00 í kirkjunni. Að slitum loknum verður sýningin og vorhátíðin í skólanum. Þá verður grillveisla við skólana og munu foreldrafélögin sjá um að grilla pylsur í mannskapinn. Allir eru velkomnir.

23. maí

Sigling með Húna II.

Mánudaginn 26. verður farið í siglingu með Húna II. Áætlað er að leggja í hann milli 9 og 9:30. Gert er ráð fyrir 3-4 tíma siglingu með veiðum og skemmtilegum ævintýrum um borð. Steini Pé fer með okkur og e.t.v. reyndir sjóarar úr Hrísey. Mikilvægt er að allir klæði sig eftir veðri, og munið það getur orðið kalt á sjó. Þegar heim verður komið geta allir farið, sem eru, í hádegismat í Hlein og að hádegismat liðnum er skóladeginum lokið hjá okkur. ATH ATH mæting er eigi að síður kl 8:00 á mánudagsmorgun í skólann.

21. maí

Grímsey

Þessi tilkynning kemur frá norður heimskautsbaug!

Hér höfum við átt 3 yndislega daga við frábæra gestrisni heimamanna. Á leiðinni til Grímseyjar komust menn að því hverjir geta lagt fyrir sig sjómennsku og hverjir ekki. Þema ferðarinnar var hamborgaraát og eru það vinsamleg tilmæli frá nemendum til foreldra sinna að hafa fisk í matinn næstu viku. 10. bekkur hefur brotið blað í sögu Grímseyjar með því að taka hér sundstig 10 sem aldrei áður hefur verið gert í sundlauginni á þessari eyju. Við höfum byrjað hér hvern morgun með sögn og bænahaldi að hætti heimamanna - mjög gaman að því!

Heimferð er ráðgerð kl. 16 að staðartíma í dag og leggst ferðin vel í fólk.

Þökkum við Grímseyingum enn og aftur fyrir frábærar móttökur og góð kynni.

Myndir úr ferðinni verða settar inn fljótlega.

Skóli á morgun fimmtudag hefst kl. 8

Með bestu kveðjum

                  ferðalangarnir

 

15. maí

Vordagar og vorferð

Þá fer námsmati senn að ljúka en áætlað er að því ljúki á morgun föstudag. Frá og með mánudeginum 19. maí verður svo óhefðbundin kennsla í skólanum. Fyrst og fremst ber auðvitað að nefna vorferðalagið okkar til Grímseyjar, en þangað er stefnt á mánudagsmorgun og komið til baka miðvikudaginn 21. maí. Það má gera ráð fyrir góðri ferð og miklu stuði. Þegar heim verður komið þarf að huga að ýmsu í okkar nánasta umhverfi, kartöflurækt, tiltekt, pappírsgerð og fleira. Umhverfisnefndin mun fara í vettvangsferð á ruslahaugana og flokkunarstöðina á Akureyri. Þá verður einnig hjólaskoðun en lögreglan á Dalvík gerir ráð fyrir að koma til okkar fimmtudaginn  29. maí. Undirbúningur fyrir vorhátíð og skólaslit stendur einnig yfir og viljum við að því tilefni minna alla á að koma með handverk sitt í skólann til sýningar!!

Bestu kveðjur Hjördís Ýrr

7. maí

Námsmat

Vikuna 13.-16. maí verður námsmat í skólanum. Hjá 1.-8. bekk verður námsmatið með hefðbundnum hætti. Nemendur fá prófahefti í hendurnar og fá um 2 tíma til að vinna í heftunum hvern dag. Að því loknu verður hefðbundin kennsla.

Nemendur 9. og 10. bekkjar hafa nýverið setið samræmd próf. Því var ákveðið að hafa námsmatið óhefðbundið hjá þeim þetta árið. Þau fá samþætt verkefni sem þau vinna í skólanum og heima þessa daga og eiga að skila 22. maí. 

2. maí

Myndir og fréttir af árshátíð.

Skemmst er frá því að segja að árshátíð grunnskólans fór einstaklega vel fram á sumardaginn fyrsta og var vel mætt að vanda. Þurfti að ná í fleiri stóla og allir bekkir þétt setnir. Allir nemendur skólans tóku virkan þátt í undirbúningi, s.s. í skreytingum, bakstri, leikmynd o.fl. Síðustu dagarnir voru vel nýttir í æfingar á leikritum enda mörg meistarastykki hér á ferð. Þá var einnig prentað veglegt skólablað og þökkum við öllum sem hjálpuðu við að gera árshátíðina veglega í þetta sinn. Myndir frá hátíðinni er hér að finna og skólablaðið Hrís má sjá hér. En svona til gamans þá eru hér að neðan nokkrar góðar myndir sem lýsa stemningunni vel þennan sólríka fyrsta sumardag.

    

22. apríl

Árshátíð grunnskóla á sumardaginn fyrsta!!

Fögnum sumarkomu með viðeigandi hætti og höldum árshátíð!! Allir velunnarar skólans eru hjartanlega velkomnir. Nemendur og starfsmenn skólans hafa öll lagt sig fram við að gera hátíðina veglega og glæsilega. Venju samkvæmt verður kaffisamsæti að dagskrá lokinni.

Sjáumst hress og kát á fyrsta degi sumars á síðustu árshátíð skólans í Sæborg!! Dagskráin hefst kl 14:00 en að árshátíð lokinni mun verktakinn  Völvusteinn hafa opið hús í nýja fjölnotahúsinu okkar!!

16. apríl

Málþing  á Akureyri - Brekkuskóla 16. apríl kl. 20:00 – 22:00


SAFT, vakningarverkefni um jákvæða og örugga netnotkun barna og unglinga á Netinu og tengdum  miðlum, stendur fyrir opnum málþingum um allt land.

Málþingið er öllum opið og þátttökugjald er ekkert. Nemendur á aldrinum 11-16 ára eru

sérstaklega boðnir velkomnir ásamt foreldrum sínum og kennurum. Mikilvægt er að

þessir aðilar styðji við forvarnir í netöryggismálum.

Sjá nánar á heimasíðu samtakanna www.saft.is

 

2. apríl 2008

Munum eftir Grænfánanum. Við í umhverfisnefnd viljum bara rétt minna alla á verkefnið okkar. Ef einhver er búinn að gleyma flokkuninni þá er hér bæklingurinn góði sem við bjuggum til í fyrra. Allir að vera duglegir.   Kveðja frá umhverfisnefnd!!

1. apríl 2008

Þann 15. apríl n.k. kl. 15:00 munu foreldrafélögin við skólana í Hrísey bjóða öllum á brúðuleikhússýningu á sal. Þar er á ferðinni Bernd Ogrodnik með sýningu um hann Einar Áskel.

Frá leiksýningu síðasta vetur um Pétur og úlfinn.

31. mars 2008

Frá gluggamálurum í Bókval Akureyri

Á þessu ári fór fram samkeppni í skólanum og var þemað vetraríþróttir. Marín Dögg í 7. bekk og Einar Örn í 4. bekk unnu keppnina og í verðlaun fengu þau að fara inn á Akureyri og skeyta sinn hvorngluggan í Bókval, Pennanum í göngugötunni. Hér má sjá nokkrar góðar myndir frá þeim. Óskum við þeim innilega til hamingju með þetta. Enn fleiri myndir má sjá á myndasíðu.

 

Marín Dögg og Einar Örn vinna að gerð mynda sinna

     

Glugginn sem Marín Dögg gerði                                                             Glugginn sem Einar Örn málaði

27. mars 2008

Nýjar myndir!!!!!!!!! Nýlegar myndir eru komnar inn á síðuna. Kíkið endilega!!!

Bestu kveðjur Hjördís

___

17. mars 2008

Pákafrí

Þá er páskafríið byrjað og vonandi eiga allir eftir að njóta þess. Kennsla hefst að nýju eftir páskafrí miðvikudaginn 26. mars kl. 8

Gleðilega páska!

 

5. mars 2008

Frestun á foreldrakaffi

Vegna veikinda þá hefur verið ákveðið að fresta foreldrakaffi sem átti að vera fimmtudaginn 6. mars til þriðjudags 11. mars

 

3. mars 2008

Vel heppnaður fundur með skólanefnd.

Fundur sem haldinn var þann 20. febrúar s.l. var að flestra mati  góður. Þar stóðu nemendur úr 5., 6. og 7. bekk sig ljómandi vel og hófu fundinn á kynningu á framtíðarsýn þeirra. Af þeim orðum að dæma er ljóst að byggð muni blómstra hér um ókomin ár. Að þeirra orðum loknum var almennt farið yfir skólamálin eins og þau eru í dag og verða í nánustu framtíð. Miklar umræður spunnust í kringum nýja fjölnota húsið og er ljóst að almennt eru miklar væntingar bundnar við húsið.

Skemmtilegur og gagnlegur fundur. Fyrirlestur nemenda má svo nálgast hér. Góða skemmtun. FRAMTÍÐARSÝN

15. febrúar 2008

Opinn fundur með skólanefnd

Miðvikudaginn 20. febrúar n.k. kl. 19:30 verður opinn fundur með skólanefnd Akureyrar haldinn í Grunnskólanum. Nú er tækifæri til að ræða saman um framtíð skólastarfs í Hrísey og koma skoðunum sínum á framfæri.

Mætum sem flest

kveðja úr Grunnskólanum

13. febrúar 2008

Vetrarpróf

Á morgun fimmtudag hefjast vetrarpróf hjá okkur í Grunnskólanum í Hrísey. Kannanirnar verða með svipuð sniði og undanfarin misseri, þar sem allar kannir eru settar saman í hefti. Nemendur fá svo tvo tíma á dag til að leysa heftin. Síðasti prófdagurinn er miðvikudaginn 20 febrúar. Foreldraviðtöl verða laugardaginn 23. febrúar.

Undanfarna daga höfum við unnið skemmtilega vinnu á valsvæðatímunum okkar. Þá hafa nemendur verið í matreiðslu, handmennt, myndmennt, tilraunum og heilsufræði svo fátt eitt sé nefnt. Nemendur hafa skemmt sér vel og lært heilmikið af þessu óhefðbundna vali. Þá var og í tilefni af degi stærðfræðinnar sérstakt verkefni unnið þar sem nemendur bjuggu til nýtt tímakerfi. Reyndist það sumum nemendum erfitt að reikna tíma ekki í mínútum og klukkutímum.

23. janúar 2008

Þorrablót

Föstudaginn 25. janúar ætla nemendur og kennarar grunnskólans að fagna komu Þorra. Þorrablótið hefst kl. 17

 

2. janúar 2008

Gleðilegt ár,

megi það verða öllum farsælt

og kærar þakkir fyrir það gamla!

Skólabyrjun eftir jólafrí verður föstudaginn 4. janúar kl. 8

 

2. desember

Skautar

Á morgun mánudaginn 3. des þá förum við í seinni skautaferðina okkar þetta árið. Þegar allir hafa rennt sér nægju sína þá ætlum við að fara á okkar árlega "jólahlaðborð" sem að þessu sinni verður tekið á Subway að ósk meirihluta nemenda. Áætluð heimkoma er kl. 15:45

 

28. nóvember

Hó hó hó.........

JÓLAFÖNDUR JÓLAFÖNDUR. Sunnudaginn 2. desember verður að vanda hið árlega jólaföndur í Grunnskólanum í Hrísey. Foreldrafélag skólans hefur lagt nótt við dag að undirbúa föndrið. Nemendur í nemedaráði sjá svo um kaffiveitingar. Allir eru hjartanlega velkomnir, munum eftir skærum, lími og litum. Hefst gleðin kl. 14:00. Sjáumst hress!!!! 

Síðasta mánudag var viðburðaríkur dagur hjá okkur í Grunnskólanum. Fengum um morguninn afar fróðlega og skemmtilega heimsókn frá lögreglunni. Þar fræddu þeir okkur um mikilvægi þess að nota réttran öryggisbúnað í umferðinni. Síðan var stefnan tekin á Akureyri. Þar var farið á skauta og renndu allir krakkarnir sér af mikilli snilld. Eftir vel heppnaða og skemmtilega skautaferð fór helmingur hópsins í sund og hinn helmingurinn á Amtsbókasafnið

Þá viljum við benda á tengil hér til hægri inn á netsvar.is en netsvar er efnisflokkaður vefur með spurningum og svörum um hvaðeina sem snýr að því að gera netnotkun örugga, ánægjulega og gagnlega. Vefurinn verður lifandi vettvangur þar sem almenningi gefst kostur á að senda inn fyrirspurnir um hvaðeina sem tengist öryggi í netnotkun og fá svör frá sérfræðingum. Fylgjumst með netnotkun barna okkar!!!!

Með bestu kveðju HÝS

21. nóvember

Þessa vikuna eru nemendur að vinna að námsmati en á laugardag verða foreldraviðtöl, það er því í nógu að snúast. Á föstudag er svo starfsdagur hjá kennurum, til að fara yfir prófin og meta frammistöðu nemenda. Þá eru nemendur í fríi en .... munið samt eftir að mæta í foreldraviðtölin á laugardagsmorgun!!!

Í síðustu viku var nóg um að vera hjá okkur. Við vorum með foreldrakaffi á fimmtudaginn og höfðu nemendur undirbúið glæsilegan kvöldverð. Þátttaka eyjaskeggja var  með besta móti og var fullt út úr dyrum hjá okkur. Nemendur kynntu einstaklega fallegt og vel unnið veggteppi sem hafði verið unnið í handmennt hjá henni Þórunni. Eftir kynninguna gæddu sér allir á góðum mat með snilldar eftirrétti. Fyrr um daginn fóru nemendur 9. og 10. bekkjar í verðlaunaafhendingu í útibúi Landsbanka Íslands á Akureyri. en nemendurnir unnu raunveruleikinn sem þau höfðu spilað í 4 vikur. Um keppnina og glæsilegan árangur nemenda okkar má sjá hér!!!! Þess má svo geta að gott orðspor fer víða og komu útvarpsmenn í heimsókn til okkar í Hrísey. Samfélagið í nærmynd (þáttur á Rás 1) var m.a. sendur í beinni útsendingu úr kennslustofu nemendana en Margrét Blöndal þáttagerðarmaður tók viðtöl við nemendur. Þá var og í svæðisútvarpinu viðtal við Ölmu Björgu. Glæsilegur árangur, til hamingju krakkar. Hér má einnig sjá myndir frá verðlaunaafhendingunni.

Á döfinni hjá okkur er skautaferð á mánudag, en farið verður með 11 ferð og komið til baka 15:45. Þá hafa nemendur skipulagt kvöldvöku þriðjudaginn 27. nóv kl. 17. Þá er ætlunin að glápa öll saman á eitthvað ótrúlega skemmtilegt og koma saman í náttfötunum!

Kv. Hjördís Ýrr

8. nóvember

Fréttir úr skólalífinu

Nú er líf og fjör, og við búin að gera ýmislegt skemmtilegt. Skemmst er frá því að segja að allir nemendur grunn- og leikskóla pökkuðu skókössum inn í jólapappír, en kassarnir voru fullir af allskyns dóti. Þeir voru síðan sendir til Úkraínu þar sem börn taka við þeim rétt fyrir jól. Heimasíðu tengda þessu verkefnni má sjá hér http://www.skokassar.net/ en einnig eru komnar myndir frá okkur inn á myndasíðuna hér til hliðar (eða hér)

Gaman er líka að segja frá því að nemendur 9. og 10. bekkjar hafa undanfarnar 3 vikur spilað Raunveruleikinn og unnið tvenn verðlaun. Nú eru nemendur að spila síðustu dagana og standa þau sig betur en nokkru sinni fyrr.

Næst á dagskrá hjá okkur (fyrir utan hefðbundið nám) er foreldrakaffi þann 15. nóvember kl. 18:00. Þar verður boðið upp á léttan kvöldverð ásamt því að nemendur kynna heimabyggðina en þau hafa öll verið að vinna að verkefnum tengdum heimabygð sinni undafarið. Allir velunnarar skólans eru hjartanlega velkomnir.

Vikan 19.-22. nóvember verður námsmatsvika og verður nánar fjallað um hana síðar.

4. október

Vinna nemenda

Í dag voru nemendur skólans að vinna að reglum skólans. Virkilega gaman var að sjá hve áhugasamir nemendur voru um skólareglurnar og greinilegt að nemendur hafa skoðanir. Þá voru einnig einkunnarorð skólans tjáð með leikrænni tjáningu. Ljóst að nemendur hafa öðlast þónokkurn skilning á orðunum manngildi - þekking - metnaður. (sjá myndir hér).

Nýjar reglur má sjá hér til vinstri undir liðnum um skólann eða smella hér

20. september

Starfsdagur kennara

Starfsdagur hjá kennurum föstudaginn 21. september og nemendur því í fríi.

 

19. september

Kartöflu uppskera

Í gær þriðjudag 18. sept tóku nemendur grunn- og leikskóla upp kartöflurnar í garðinum okkar. Þær voru hvorki stórar né margar en börnin stóðu sig með mikilli príði og gerðu sér að góðu kartöflurnar sem bornar voru með steikta fiskinum í hádeginu!!! Leikskólinn hefur sett skemmtilegar myndir inn á sína síðu og má skoða þær hér.

12. september

Skólasund

Þessa dagana erum við að læra að synda. Fórum í sundlaugina á Dalvík í gær 11. sept.og stefnum þangað aftur á mánudaginn með ferjunni kl. 13!!! Nemendur stóðu sig vel og nokkrir efnilegur sundkappar í hópnum. Að skólasundi loknu fengu allir frjálsa stund í lauginni. Pottarnir voru vinsælastir hjá kennurum en rennibraut og leiksvæði meðal ynri kynslóðarinnar. Þá voru nokkrir sem fóru í heita og góða gufu eftir erfitt sundið.

Umferðarfræðsla

Nemendur í 6. og 7. bekk stefna inn á Akureyri að læra um helstu hættur umferðar og hvað við getum gert til að auka eigið öryggi. Hugsanlega verður farið á föstudaginn. Nánar síðar.

Útivistartími

Foreldrar munið breyttan útivistartíma barna og ungmenna; Sjá nánar hér

mbk

Hjördís Ýrr

7. september 2007

Skólaleikar

Úrslit hafa verið kynnt í skólaleikunum 2007. Keppnin var í alla staði góð og drengileg mjög. Mega þátttakendur (og sérstaklega liðstjórar) vera sáttir og glaðir með sinn hlut. Þið stóðuð ykkur mjög vel kæru nemendur. Skoðið skemmtilegar myndir frá skólaleikunum!!!!!! Nánar má sjá allar lokatölur hér

Kv

Hjördís Ýrr

Skólabyrjun

Grunnskólinn í Hrísey verður settur mánudaginn 27. ágúst kl. 17.

Kennsla hefst kl. 8 þriðjudaginn 28. ágúst.

Skólastjóri

 

Innkaupalistar!!!!!!!

Allir eiga að fara vandlega yfir íþróttafatnað, bæði föt og íþróttaskó.

 

1. – 4. bekkur

 

1000 kr til ritfangakaupa (Þórunn).

Sögubókin mín A4 2 stk

Harðspjaldamappa tveggja gata 1 stk

Reiknisbók A4 án gorma stórar rúður

Teikniblokk A4

Úrklippubókin mín 1 stk

Þunnar plastmöppur 8 stk

Teygjumöppur f. heimanám 2 stk

Stílabók A4 1 stk

 

 

5. – 7. bekkur

 

1000 kr til ritfangakaupa (Vilborg).

Harðspjaldamappa A4 tveggja gata, þykk

Skiptiblöð m/ a.m.k. 10 skiptiblöðum

Lausblöð eða –bók línustrikuð

Lausblöð eða –bók rúðustrikuð

Þunnar plastmöppur 2 stk

Vasareiknir

Stílabók A5 með rúðum

Teikniblokk A4

 

 

9. – 10. bekkur

 

Harðspjaldamappa A4 tveggja gata, þykk

Skiptiblöð m/ a.m.k. 10 skiptiblöðum

Lausblöð eða –bók línustrikuð

Lausblöð eða –bók rúðustrikuð

Þunnar plastmöppur 2 stk

Vasareiknir m/ π

Blýantar

Strokleður

Gráðubogi

Reglustika

Hringfari

júní 2007

Verðlaun

Það er gaman að segja frá því að Guðný Jónsdóttir  sem var að ljúka 10. bekk hjá okkur í vor, fékk bókarverðlaun frá Menntamálaráðuneytinu og Hinu íslenska bókmenntafélagi fyrir góðan námsárangur á samræmdum prófum. Til hamingju Guðný!

 Og gleðilegt sumar!

 

25.maí 2007.

Skólaferðalag Grunnskólans í Hrísey  2007.

Þann 23.maí var haldið í hið árlega skólaferðalag með 09:00 ferjunni. Þó svo að rútuferðin hafi ekki verið löng voru flestir þreyttir og fengu sér kríu. Haldið var í Kjarnaskóg í sumarbústað. En þar sem við fengum ekki sumarbústaðina fyrir en eftir hádegi þá fórum við upp í Hamra til að drepa tímann. Krökkunum var skipt í 3 hópa, farið var í leiki, sig og við lærðum að kveikja  eld. Í hádeginu elduðum við á “súdan” eldavélar, sumir voru að tapa þolinmæðinni, en þetta tókst hjá okkur öllum á endanum. En lyktin af fötunum var ekkert ofan á brauð. Elduð var ljúfeng stafasúpa og grilluð “snobrød” að hætti Dóru. Eftir að allir voru búnir að borða var hópnum liðaskipt  og farið var í þrautakeppni. Síðan vorum við látin labba niður í sumarbústað. Byrjað var á að koma sér fyrir og finna sér herbergi með góðum herbergisfélögum. Og það vildi svo skemmtilega til að heitir pottarvoru  í bútöðunum þannig að sumir skelltu sér strax í pottana. Þegar leið að kvöldmat hjálpuðust allir að við matinn, grillaðir voru hamborgarar og með því. En við stelpurnar í 10.bekk fengum ekki að slaka strax á því við vorum keyrðar í bæinn til að klára 10. stig í sundi. Eftir erfitt sund fór Jóhanna með okkur út á flugvöll þar sem Hjördís beið okkar til að renna með okkur upp í bústað. En Hjördís ætlaði að vera rosalega sniðug og fara með okkur aðra leið, sem byrjaði vel. Já við villtumst.(Pant ekki fara með henni í bíl í Danmörku) Nei,nei við fundum nú leiðina að bústöðunum. Þá loksins fengum við að slaka á, horft var á sjónvarpið og róleg og kósý heit. Sumir fóru fyrr að sofa en aðrir, og sumir fóru SEINNA að sofa en aðrir. Næsta morgun var vaknað í skíta veðri, snjókomu og rigningu. Fyrst á dagskrá var að pakka niður, taka til og þrífa bústaðinn. Þó svo að veðrið væri eins og það var fórum við samt í sund. Og eftir sundið var labbað niður á Subway í skítakulda og borðaður  hádegismatur. Og auðvitað var okkur hrósað fyrir kurteisi og hvað við erum stillt og prúð börn.  Eftir vel heppnað ferðalag komum við okkur heim og miiiikil þreyta var í liðinu.

Ritstjóri þessara færslu er Andrea Ösp




15. maí 2007.

Kæru lesendur.

Nú hafa nemendur í 10.bekk lokið merkum áfanga í sínu lífi, samræmduprófum. Auðvitað búumst við ekki við öðru nema þeim hafi gengið vel. Krakkarnir fá einkunirnar í hendurnar í byrjun júní. En 10. bekkingar eru ekki alveg sloppnir enn, því vorprófin hófust í dag og er síðasti prófdagur mánudaginn 21.maí hjá öllum nemendum skólans. Prófin eru með sama hætti og í fyrra.

Á morgun halda svo nemendur í 10. bekk út í óvissuna og eru þeir orðnir mjög “spenntir” að komast að hvert verður farið…(…heee…)

Farið verður í skólaferðalag í Kjarnaskóg miðvikudaginn 23.maí nk..  Í ferðalaginu á m.a. að ganga á Súlur og gerum við ráð fyrir því að börn hafi með sér viðeigandi fatnað í þá ferð en það verður auglýst betur síðar.  

Síðustu dagarnir fyrir sumarfrí verða vordgar, dagana 21., 22. og 25.maí.  

Meira er ekki í fréttum úr skólastarfi að sinni.  Upplýsingar um skólaferðalag og annað verður greint frá síðar.

Bless bless,

Ritstjórar þessara færslu munu vera Andrea og Klara.

 

Mánudaginn 30. apríl er nemendum  í 8., 9. og 10. bekk boðið uppá silfursmíði, námskeiðið verður haldið tvisvar og kostar kr. 1000

 

 

Pizzaveisla

Mánudaginn 23. apríl ætlum við að fara í pizzaveislu á Brekku kl. 18
og halda uppá þann áfanga sem nemendur skólans hafa náð í lestri. Í haust fórum við af stað í skemmtilegt verkefni, útbúinn var lest sem nemendur hengdu aftan í miða fyrir hverja bók sem þau lásu. Lestin byrjaði í forstofu skólans og hélt síðan áfram inneftir skólanum og núna nær hún í hring um skólann.
Glæsileg frammistaða það!!

 

 

 

 

Félagsmál

Mánudaginn 16. apríl verður brjóstsykursgerð í gangi, nemendur í 4.,5.og 6. bekk byrja kl. 14:30 og eldri nemendur verða svo seinnipartinn.

13. apríl

 Minnum á Árshátíðina fimmtudaginn 19. apríl, sumardaginn fyrsta klukkan 14:00

 

Fimmtudaginn 12. apríl, fóru 3.-6., 8.-9. bekkur í ferðalag til Dalvíkur.

Þar var byrjað að fara á Byggðasafnið, byrjað var á því að hlusta á kynningu

á matargerð fyrri tíma. Svo var tekin pása og smökkuðum við ný síað skyr,

mysu með appelsínusafa, hræring og vakti það misgóða hrifningu.

Seinna var haldin önnur kynning um hreinlæti og þar fengum við að sjá fótstiginn tannbor og margt annað fróðlegt.

Svo var haldið í sund með gestunum okkar frá Svalbarðsskóla í Þistilfirði.

Þegar komið var heim var boðið í vöfflur og djús.

 

 

 

 

 

Mars 2007.

Pákafrí hefst föstudaginn 30. mars. Kennsla hefst að nýju klukkan: 8 miðvikudaginn 11. apríl.

Fimmtudaginn 29. mars var haldið foreldrakaffi í skólanum og tókst það mjög vel, kennararnir sögðu okkur aðeins frá ferðinni til Finnlands og eftir þá kynningu langar okkur öllum í draumaborðin sem þær töluðu mjög mikið um.
Síðan gæddum við okkur á marsipantertu, brauði, skúffuköku, muffinsi og snickerskökum.
Eftir að hafa borðað kökur og drukkið kaffi var farið í trivial pursuit keppni, foreldrar á móti nemendum. Fyrir hönd foreldra voru það Margrét Sigmunds, Hanna Eyrún, Vilborg og Jóhanna kennarar, fyrir hönd nemenda voru það Alma, Paula, Dísa og Rebekka.
Og hverjir haldiði að hafi unnið?? jájá ef við þið giskuðuð á fullorðna fólkið þá eruð þið ekki með öllum mjalla, auðvitað unnum við stelpurnar þetta fullorðna fólk ;) haha.. :)

Núna er undirbúningur fyrir Árshátíðina kominn í fult gang og keppast nemendur við að æfa sitt atriði. Skólablaðið er líka í fullri vinnslu. Árshátíðin verður síðan haldin sumardaginn fyrsta 19. apríl :) segjum meira frá því þegar nær dregur.

Minnum á að nemendaráð ætlar að ganga í hús og selja páskaliljur og kerti á sunnudaginn 1. apríl, við munum byrja um 14:00 ;) allir að taka vel á móti þeim.

Við óskum ykkur öllum gleðilegra páska.

Kveðjur Paula og Alma.

 

Foreldrakaffi

Fimmtudaginn 29. mars verður foreldrakaffi í skólanum kl. 17

Allir velkomnir

8. mars

Skólinn næstu daga.

Senn líður að námsferð kennara Grunnskólans í Hrísey. Stefnan er sett á Espoo sem er í nágrenni við Helsinki í Finnlandi. Föstudaginn 9. mars verður gefið frí í skólanum en Ungmennafélagið Narfi hefur boðið nemendum skíði. Mánudag, þriðjudag og miðvikudag mun kennsla vera nokkuð óhefðbundin en margir Hríseyingar munu leggja hönd á plóg og mæta til kennslu. Þá verður leiklist, spil, rafmagnsfræði, snyrtifræði nokkuð af mörgu sem kennt verður. Er það von okkar að allir njóti þessara daga og komi fróðir til starfa fimmtudaginn 15. mars n.k. 

7. mars

Nýverið voru stofnuð samtök foreldra í grunnskólum Akureyrarbæjar. Tilgangur samtakanna er vinna að sameiginlegum málefnum grunnskólanema sveitarfélagsins en slagorð samtakanna er

 Öflugur málsvari foreldra, aukið samstarf við bæjaryfirvöld.

Ályktun samtakanna má sjá hér

Febrúar 2007

13. febrúar

Nýjar myndir komnar inn. Skoðið skemmtilegar skíða og þorra myndir

Skíðaferðin...
Í gær skelltum við okkur í skíðaferð eins  og glöggir lesendur vita. Mættum uppí fjall um 10 leytið og renndum okkur  til 12, þá tókum við okkur hádegishlé, of langt að mati sumra ( því að starfsmenn Hlíðarfjalls voru svo lengi að borða matinn sinn). Þegar   lyfturnar voru loksins opnaðar aftur fórum við strax að renna okkur aftur til 14:30, þá fóru uppgefnir nemendur aftur í rútuna og heim!
Dagurinn var stórskemmtilegur og krakkarnir skemmtu sér bara mjög vel! =)


Yngstu krakkarnir tilbúnir...

Jóhanna ..

Von á myndum á næstunni á myndasvæði síðunnar.

 

 

Veðurathuganir.

Jæja þá er komið að því. Hér til hægri er hnappur sem vísar á nýja undirsíðu um veðurathuganir hjá okkur hér í Grunnskólanum.

Janúar 2007

25. janúar

Vel heppnað þorrablót. Nemendur og aðrir starfsmenn skólans skemmtu sér konunglega á skemmtilegu þorrablóti föstudaginn 19. janúar skemmtilegur siður þar á ferðinni.

Byggingaframkvæmdir. Eins og flestir hafa tekið eftir eru framkvæmdir hafnar við byggingu fjölnota íþróttahússins hér í Hrísey. Ottó húsamsmíðameistari hjá Völvusteini kom í skólann í dag og ræddi um hætturnar í kringum vinnusvæðið. Allir nemendur lofuðu að sýna aðgát og koma ekki of nærri. Hann sagði jafnframt frá því að innan tíðar verður búið að girða svæðið af.

Þorrablót

19. janúar kl. 17 verður Þorrablót hjá okkur í skólanum.

 Þá koma nemendur og kennarar saman og njóta góðs matar og skemmtiatriða.

15. janúar

Brúðuleikhús

Þriðjudaginn 16. janúar kl. 14:30 verður brúðuleikhússýning í skólanum. Sýnt verður ævintýrið  Pétur og úlfurinn.

Fréttir úr skólastarfinu
12.janúar

Eins og margir vita fékk Grunnskólinn veglega afmælisgjöf frá skólanefnd Akureyrar á 100 ára afmælinu. Peningurinn var notaður í marga nytsamlega hluti eins og ný spil, tölvur,viðsjá og smásjár og einnig til að gera handmenntastofuna okkar betri. Nemendurnir eru mjög ánægðir með þessu kaup því það var svo sannarlega komin tími á að kaupa ný spil, og hafa þeir eytt öllum frímínútum í að spila. Og gaman að segja frá því að nemendum tókst næstum því að vinna kennarana í Trivial Pursuit.

Fyrsta skóflustungan að fjölnota íþróttahúsi sem rísa mun í Hrísey var tekin laugardaginn 6. janúar klukkan 12.00 á hádegi á lóðinni við sundlaugina. Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri, ásamt ljósmyndurum og fjölmiðlum. Eftir athöfnina var öllum gestunum, sem voru 120 talsins, boðið í kaffiveitingar í skólanum sem voru ekki á verri endanum.

Þann 11.janúar 2007 bárust nemendum í 10 bekk svo sannarlega gleðifréttir frá lífsleikni kennara þeirra henni Ingibjörgu. Og hún tilkynnti þeim að þau hefðu verið í 1 sæti í Raunveruleiknum fyrir desember mánuð, en raunveruleikurinn er gagnvirkur hermileikur þar sem nemendur fá innsýn í líf fullorðinnar manneskju og þurfa að móta lífshlaup sitt í sem raunverulegustu aðstæðum. Þar sem að Inga er þekkt fyrir mikla fyndni sagði hún þeim fyrst að þau hefðu unnið ferð til Dublin og spennan sem heltók nemendur varð gífurleg…..En Inga var bara að grínast. Nemendum til mikilla vonbrigða. En svo sagði hún nemendunum að þeir hefðu í alvöru unnið 6 miða í leikhús hjá Leikfélagi Akureyrar og máltíð á Greifanum fyrir allan hópinn. Ekki voru það minni gleðifréttir en Dublinar ferðin. Stefnt er á að fara inn á Akureyri þann 4.febrúar og njóta verðlaunanna.

Í örfáum orðum viljum við minna á einkunnar orð skólans sem eru
„Manngildi – Þekking – Metnaður”
Nemendur hafa verið að vinna við þessi 3 orð og tala saman um merkingu þeirra. Þess vegna viljum við enda þessa grein á að segja við þig kæri lesandi vertu góður og elskaðu náungan eins og sjálfan þig.

Klara&Andrea Ösp
 

 

Foreldrafundir

 

Þriðjudaginn 9. janúar ætla umsjónarkennarar að funda með foreldrum nemenda í sínum bekkjum. Fundarefni: Skólastarfið framundan.

Fundartími verður sem hér segir: 1.,2. og 3. bekkur kl. 16:30-17, 4.,5. og 6. bekkur kl. 17:00 -17:30.       8., 9. og 10. bekkur kl. 17:30 - 18:30

Vonumst til að sjá sem flesta

                                      Kveðja starfsfólk grunnskólans 

 

5. janúar

Skóflustunga á laugardaginn

Fyrsta skóflustungan að fjölnota íþróttahúsi sem rísa mun í Hrísey verður tekin laugardaginn 6. janúar klukkan 12.00 á hádegi á lóðinni við sundlaugina.Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri, mundar skófluna en að athöfninni lokinni verður öllum boðið í kaffiveitingar í grunnskólanum.Skorað er á Hríseyinga að fjölmenna og gleðjast saman á þessum merkisdegi.

Nemendur grunn- og leikskóla ætla að syngja við athöfnina og við hvetjum foreldra einnig til að mæta og vera viðstaddir.

 

Gleðilegt nýtt ár!

Skóli hefst að loknu jólafríi fimmtudaginn 4. janúar kl. 8

Desember

14. desember

Góðan daginn ;)

Nú ætla ég Paula M. Pálsdóttir að segja ykkur stuttlega frá því sem er að fara að gerast næstu daga í skólanum og hvað við erum búin að vera að gera..

Þessa vikuna höfum við verið að föndra jólakort og jólaskraut. Nemendurnir hafa verið með Dóru í heimilisfræði og eru að baka smákökur og piparkökuhús, á föstudaginn ætlum við síðan að skera í laufabrauð og steikja það ;) 

Í næstu viku ætlar nemendaráðið að selja dagatal fyrir árið 2007 sem við erum sjálf búin að vinna í og fer ágóðinn í ferðasjóðinn hjá okkur.

Mánudaginn 18. des ætlar nemendaráðið að halda galaball eða reyndar sagt jólaball, og ætla yngri krakkarnir að skemmta sér frá 20:00 – 21:30 og eldri frá 21:00 – 23:30 .Kosin verður kóngur og drottning, prins og prinsessa og fjörkálfur ársins hjá eldri krökkunum. Kosningarnar fara fram í skólanum og eru það nemendur sem kjósa.

Þriðjudaginn 19. des verða hin árlegu litlujól í skólanum og mæta nemendur í stofujól klukkan 14:00 og mega þeir koma með nammi, snakk og gos. Eins og við höfum alltaf gert þá skiptumst við á jólagjöfum og kemur hver og einn nemandi með eina gjöf uppá 300 kr. Síðan verður dansað í kringum jólatréð klukkan 15:00 og eru allir hjartanlega velkomnir ;)

Eftir litlujólin hefst síðan langþráða jólafríið hjá nemendum og kennurum. Starfsdagur kennara er miðvikudaginn 3. janúar 2007 og mæta nemendur þess vegna í skólann fimmtudaginn 4. janúar samkvæmt stundarskrá klukkan 8 ;)

Núna ætla ég að nota þessi síðustu orð mín til að óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári ;) Takk fyrir samveruna á árinu sem er að líða og borðið nóg af konfekti.

 

6. desember

Þá er jólaprófum senn að ljúka og  foreldraviðtöl verða laugardaginn 9. desember. Vikan 11.-15. desember verður svo með nokkuð óhefðbundnum hætti. Eldri nemendur munu þá vinna í þemaverkefni sem tengist árinu 1974 en yngri nemendur vinna með þema tengt jólunum. Inn á milli verða spiluð jólalög, föndrað og skreytt. Síðasti skóladagur verður 18. des og litlu jólin verða 19. des.

Nóvember       

28. nóvember

Jólaföndur!!!!

Sunnudaginn 3. desember verður jólaföndur í skólanum. Allir eru hvattir til að mæta og eiga góðan og skemmtilegan dag. Gott er að hafa með sér lím, liti og skæri. Selt verður kaffi, kakó og smákökur til styrktar nemendaráði. Fjörið hefst klukkan 14:00 í skólanum.

24. nóvember

Athugið. Fyrirhugað er að hafa foreldraviðtöl laugardaginn 9. desember n.k. nánari tímasetningar koma síðar. Þá verða "jólapróf" lögð fyrir frá 1. - 6. desember. Verða prófin í svokölluðu prófahefti sem nemendur vinna í daglega þessa 4 daga, um 1 - 11/2 klst á dag. Að þeim tíma liðnum er svo hefðbundinn skóladagur.

SKAUTAR Á MÁNUDAGINN 27. NÓVEMBER!!!!!!!

21. nóvember

Fimmtudaginn 23. nóvember  næstkomandi verður boðið upp á Marita-fræðsluna „Hættu áður en þú byrjar“ fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk.  Forvarnafræðslan fer fram á skólatíma með nemendum og mun Magnús Stefánsson fræðslufulltrúi og óvirkur fíkill segja krökkunum frá sinni reynslu, ásamt því að sýna mynd um neyslu vímuefna. Við munum síðan ræða við unglingana um skaðsemi þeirra og glansmyndir sem tengjast þeim heimi.

Í framhaldi af nemendafræðslunni, er foreldrum boðið upp á samskonar fræðslufund Fimmtudagskvöldið 23. nóvember kl. 20.00  á sal Brekkuskóla.  Tilgangur með þeim fundi er að samhæfa aðgerðir foreldra í því að byggja upp ungmenni sem geta sagt nei við neyslu á vímuefnum. Sjá nánar bréf hér

17. nóvember

Mánudaginn 20. nóvember ætlum við að fara til Akureyrar á skauta. Við förum með 9 ferju og komum heim aftur með ferju kl. 13:45. Þeir nemendur sem eiga skauta eiga endilega að taka þá með sér.  Við förum með nesti sem er fyrir alla. 
Nemendur koma i skólann kl. 8 og fara þaðan í ferjuna. 
Áætlað er að endurtaka skautaferð mánudaginn 27.nóvember

14. nóvember

Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskólans í Hrísey verður haldinn í skólanum miðvikudaginn

15. nóvember kl. 20

Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf

 

Við viljum minna á Afmælisvefinn sem var gerður í tilefni af 100 ára afmæli skólahalds.

2. nóvember

Kæru foreldrar og forráðamenn                                                

Þá líður að jólum, því miður búa ekki allir við þær alsnægtir sem við búum við og því langar okkur að gleðja þá um jólin. Okkur langar að taka þátt í verkefninu Jól í skókassa. Þetta verkefni felst í því að nemendur útbúa jólapakka úr skókassa. Í kassana má setja leikföng, ritföng, sælgæti,vettlinga, sokka eða hreinlætisvörur. Þessir hlutir þurfa ekki að vera nýir en illa farnir hlutir, stríðsdót og spilastokkar mega ekki fara.

Ef til eru skókassar heima og eitthvað til að setja í þá, þá væri vel þegið að nemendur yrðu sendir með það í skólann á mánudaginn en þá ætlum við að ganga frá pökkunum. Við munum reyna að útvega þeim nemendum kassa sem ekki eiga neina heima.

 

                   Með kveðju nemendur og starfsfólk leik- og grunnskólans

 

 

1. nóvember

Það styttist nú í skólahátíðina og viljum við því benda á nýja síðu þess efnis. Hana má finna hér

Október

20. október

Sunnudaginn 5. nóvember ætlum við að hafa opið hús í skólanum og minnast þess með ýmsum hætti að 100 ár eru liðin frá því að formlegt skólastarf hófst í Hrísey. Dagskráin verður nánar auglýst síðar.

19. október

Í dag taka nemendur í 4. bekk samræmt próf í íslensku og á morgun takast þau á við stærðfræðina.

 

 

September

14. september

Skólaleikar - Útivistardagur

Á morgun föstudaginn 15. sept. ætlum við að halda áfram með skólaleikana okkar sem hófust í dag og vera utandyra. Við ætlum að keppa í fótbolta og berjatínslu svo allir þurfa að koma vel klæddir og skóaðir.

6. september

Foreldraviðtöl

Foreldraviðtöl verða í skólanum laugardaginn 9. september. Nemendur koma heim á morgun með tímasetningar. Foreldrar eru beðnir um að hafa samband ef tíminn sem þau fá hentar ekki.

6. september

Dagskráin í dag og á morgun

Skólinn verður óhefðbundinn í dag, mæting er kl. 9:30. Þá verða eldir nemendur og Finnar með kynningar. Útivera verður þó nokkur, við grillum úti í hádeginu,  förum í vitaferð og berjaferð á heimleiðinni (Við förum á traktor út í vita og hálfa leiðina til baka) Heimkoma er áætluð um 15:00-15:30 og þá verður öllum boðið í vöfflukaffi í skólanum. Nemendur geta þá farið í sund ef vill. Frjáls tími er að því loknu og skóladegi 1. - 6. bekkjar lokið. Nemendum 9., 8. og 10. bekk er boðið til hátíðarkvölverðar kl. 19:00 og kvöldvaka hjá þeim að því loknu.

Á morgun fara svo Finnarnir héðan en við mætum í skólann kl. 9:30 og setjumst aftur á skólabekk.

Njótum þess öll að hafa það skemmtilegt saman og sýnum gestum okkar hvað við erum prúð.

Ágúst

31. ágúst

Finnar koma í heimsókn

Þriðjudaginn 5. september fáum við 25 ungmenni frá Finnlandi í heimsókn. Þu ætla að gista hjá okkur í 2 nætur og ætlum við að hafa skólahald mjög óformlegt þessa 2 daga. Við munum bralla ýmislegt skmmtilegt með gestum okkar. Miðvikudaginn 6. sept og fimmtudaginn 7. sept. mæta nemendur því kl. 9:30 í skólann. (Finnarnir verða nú að fá að vakna og hafa sig til áður en við ryðjumst inn á þau)

Tökum vel á móti gestum okkar.

25. ágúst

Íþróttir

Í haust ætlum við að vera úti í íþróttatímum eins lengi og veður leyfir. Því er mikilvægt að nemendur komi klæddir til útiveru og í skóm og öðrum fatnaði sem má blotna og verða skítugur.

Skólasetning

Grunnskólinn í Hrísey verður settur miðvikudaginn 23. ágúst kl. 17. Kennsla hefst kl. 8 fimmtudaginn 24. ágúst. Mötuneytið tekur þá einnig  til starfa.

Skólabyrjun - innkaupalistar

1., 2. og 3. bekkur

Harðspjalda mappa (2 göt)

Teygjumöppur 2 stk

Tímaritagámur helst úr plasti/timbri

Plastmöppur 5 stk

Reiknisbók án gorma,          stórar rúður

Sögubókin mín 2 stk

Teikniblokk A4

Úrklippubókin mín

1000 kr sem Þórunn notar         til að kaupa og eiga nóg af blýöntum, yddurum, litum skærum lími o.þ.h

 4. 5. og 6. bekkur

Þykk harðspjalda mappa (2 göt)

Teygjumöppur 2 stk

Teikniblokk A3

Tímaritabox

1000 kr sem Vilborg notar         til að kaupa og eiga nóg af blýöntum, yddurum, litum skærum lími o.þ.h

 

 

8. - 9. bekkur

Harðspjalda mappa (2 göt)

Teygjumöppur 2 stk

Skiptiblöð m/ 10 blöðum

Línustrikuð laus blöð eða gormabók

Rúðustrikuð laus blöð eða gormabók

Reglustika og gráðubogi

Blýantur, strokleður og yddari

Reiknivél

8. bekkur Teikniblokk A3

 

 

10. bekkur

Harðspjalda mappa (2 göt)

Teygjumöppur 2 stk

Skiptiblöð m/ 10 blöðum

Línustrikuð laus blöð eða gormabók

Rúðustrikuð laus blöð eða gormabók

Reglustika og gráðubogi

Blýantur, strokleður og yddari

Reiknivél

 

 

 

 

Júní 2006

Verðlaun

Það er gaman að segja frá því að Gréta Kristín Ómarsdóttir  sem var að ljúka 10. bekk hjá okkur í vor, fékk send bókarverðlaun frá Menntamálaráðuneytinu og Hinu íslenska bókmenntafélagi fyrir góðan námsárangur á samræmdum prófum. Til hamingju Gréta!

 Og gleðilegt sumar!

 

 

31. maí

Skólaslit

Grunnskólanum verður slitið í dag kl. 17 í kirkjunni. Að því loknu verður farið upp í skóla þar sem sýndur er afrakstur hand- og myndmenntakennslu í vetur, leikskólinn býður til vorhátíðar og foreldrafélög skólanna bjóða upp á veitingar.

29. maí

Þá er síðasta skóladegi vetrarins lokið, við gátum því miður lítið verið í útiverkum þessa síðustu daga eins og til stóð vegna þess hve mikill snjór er ennþá. Við fórum í skemmtilegt skólaferðalag í Fögruvík og létum veðrið ekki skemma fyrir okkur.

 

 

21. maí

Enn er veðrið að spilla fyrir okkur en þar sem veðurspá er á versta veg fyrir sægarpa þá höfum við tekið þá ákvörðun að fella niður Grímseyjarferð þetta vorið, því miður.

 

16. maí

Skólaferðalag

Við förum til Grímseyjar í skólaferðalag í vor. Leggjum í hann mánudaginn 22. maí og komum heim miðvikudaginn 24. maí

 

3. maí 2006

Námsmat

Í vor ætlum við að hafa vorpróf með öðru sniði en áður. Kynningarfundur verður í skólanum mánudaginn 8. maí kl. 17

 

3. maí 2006

Danssýning

Nú sýnum við hvað við erum búin að vera dugleg að læra að dansa og bjóðum til danssýningar í Sæborg fimmtudaginn 4. maí kl. 13:30

Allir velkomnir

25. apríl 2006

Umhverfismál- Grænfáni

Á fimmtudaginn 27. apríl verður súpufundur í skólanum þar sem farið verður yfir umhverfismálin, hvað hefur verið gert og hvert við viljum stefna. Allir foreldrar og aðrir áhugamenn um umhverfismál eru hvattir til að mæta. Við sendum boðsbréf til bæjarstjóra og bæjarstjórnar en vitum ekki enn hvort einhverjir frá þeim mæti. Boðið verður upp á súpu og brauð. Vonumst til að fá sem flesta

24. apríl 2006

Dans

Þá eru nemendur grunnskólans farnir að dansa undir stjórn Ingunnar danskennara. Hún kemur til okkar þrjá daga í þessari viku og þrjá í næstu viku.

17. apríl 2006

Páskafríi lýkur miðvikudaginn 19. apríl og hefst kennsla kl.8.

Nemendur í  9. og 10. bekk fara inn á Akureyri í næstsíðasta valtíma þetta skólaárið

 

 

31. mars

Árshátíð - Árshátíð

Árshátíð Grunnskólans verður á morgun laugardaginn 1. apríl kl. 14 í Sæborg

Allir velkomnir

20. mars

Stóra upplestarkeppnin í 7. bekk. – Akureyri.

Grunnskólarnir á Akureyri hafa tekið þátt í keppninni síðastliðin 5 ár og nú í ár verður Lokahátíðin haldin að venju í Menntaskólanum á Akureyri miðvikudaginn 22. mars og hefst kl. 17:00. Þar munu 13 fulltrúar úr grunnskólunum sjö leiða saman hesta sína og flytja vandaðan upplestur. Nemendur í Tónlistarskólanum á Akureyri munu sjá um tónlistarflutning.

Nemendur hafa allt frá degi íslenskrar tungu æft vandaðan upplestur og framburð undir leiðsögn kennara síns, og á hátíðunum koma fram þeir sem lengst hafa náð í sínum skóla.

Keppnin hefur á undanförnum árum verið mikil lyftistöng fyrir bekkjarstarfið í 7. bekk. Nemendur hafa lært að koma fram og flytja texta á vandaðan og virðulegan hátt, lagt rækt við góða túlkun en án nokkurra öfga eða tilgerðar. Upplestrarkeppnin er löngu orðin eitt viðamesta skólaþróunarverkefni á landinu. Verkefnið hefur orðið til þess að læsi nemenda hefur batnað, áhugi á bókmenntum hefur víða glæðst, margir hafa sigrast á feimni og óöryggi, og orðið mannalegri í framkomu. Víða er upplestur orðinn stærri þáttur en áður var í öllu bekkjarstarfi og það hefur skilað sér í sífellt jafnari og betri frammistöðu á lokahátíðum keppninnar.

Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu keppninnar.

http://www.ismennt.is/vefir/upplestur

 

Dísa Rún mun keppa fyrir okkar hönd og við óskum henni góðs gengis.

 

 

 

13. mars

Foreldrakaffi

Fimmtudaginn 16. mars verður foreldrakaffi í skólanum. Allir velkomnir og við vonumst til að sjá sem flesta

 

6. mars

Skíðaferð

Fínt veður og gott færi svo við förum í skíðaferð í dag kl.13, komum heim 17:45

5. mars

Skíðaferðir

Á föstudag var farið í velheppnaða skíðaferð og við stefnum á að fara aftur á skíði eftir hádegi á mánudag 6. mars.

24. febrúar

Bollukaffi

Minnum á bollukaffi í skólanum á sunnudaginn 26. feb. kl. 15.

Seldar verða ljúffengar rjómabollur, kaffi og kakó.

24. febrúar

Engin skíðaferð í dag

Það ætlar því miður að verða bið á því að við komumst á skíði.

 

16. febrúar

Skíðaferð

 Fyrirhugað er að fara í skíðaferð á morgun föstudaginn 17. febrúar ef veður leyfir. Við förum með ferju kl. 13 og komum heim með ferju kl. 17:45. Nemendum sem ekki eiga skíðaútbúnað er séð fyrir slíku.Boðið er upp á kennslu bæði á skíði og bretti.

Allir þurfa að hafa með sér gott nesti og vera vel klæddir.

Ef foreldrar hafa áhuga á að koma með þá eru þeir velkomnir.

Fyrirhugað er að fara einnig á skíði næstu tvo föstudaga kl. 13 ef veður og færi leyfa.

 

          Kveðja

Starfsfólk grunnskólans

 

 

31. janúar

Umhverfisnefnd skólans fór í vettvangsferð í Endurvinnsluna.

meira

 

19. janúar

Þorrablót

Föstudaginn 20. janúar verður þorrablót hjá nemendum og kennurum grunnskólans.

Þorrablótið hefst kl. 17

 

5. janúar 2005

Þá er skólastarf komið á fulla ferð aftur eftir jólafrí. Í dag fóru nemendur fyrstu ferð í að safna fernum á þessu ári og heimtur eru alltaf að verða betri og betri. Takk fyrir góðar undirtektir.

  

19. desember

Jólafrí

Nú eru nemendur komnir í jólafrí. Kennsla hefst á nýju ári, 4. janúar kl. 9:30

Við óskum öllum velunnurum skólans gleðilegra jóla og þökkum fyrir okkur

 

Gjaldskrá í mötuneyti

Skólanefnd hefur tekið þá ákvörðun að lækka skuli verð fyrir hádegisverð í grunnskólum Akureyrarbæjar. Þeir nemendur sem eru að kaupa heila önn í mötuneyti eins og nemendur hér í Hrísey gera, borga frá 1. janúar 2006  kr.  210 fyrir máltíðina í stað 280 kr.

 

Litlu jólin- breyting

Litlu jólin verða á föstudag  16. desember en ekki á laugardag eins og fyrirhugað var.

Föstudagurinn verður venjulegur skóladagur fram að hádegi, þá fara nemendur heim og koma aftur á jólaskemmtun kl 14. Við byrjum svo að ganga kringum tréð kl 14:30 og þá eru foreldrar og aðrir aðstandendur velkomnir. Nemendur bjóða upp á kaffi og piparkökur í lokin.  

Jólakvöldvaka verður svo hjá nemendum í Sæborg um kvöldið og hefst kl. 20

 

11. desember

Leiksýning

Í dag kl. 14 fáum við að njóta leiksýningarinnar Pönnukakan hennar Grýlu með leikskólanum.

 

 

Starfsdagurog foreldraviðtöl

Föstudaginn 9. desember verður starfsdagur hjá kennurum og nemendur því í fríi.

Laugardaginn 10. desember eru foreldraviðtöl

 

 

Námsmat

 Dagana 5. - 8. desember er námsmat í gangi hjá okkur

 

 

 

25. nóvember

Skautaferð

Þriðjudaginn 29.  og miðvikudaginn 30. nóvember þá ætlum við að fara á skauta í Skautahöllinni á Akureyri. Við förum með 9 ferju báða dagana og nemendur mæta á bryggjuna vel fyrir kl. 9.

Kennarar verða komnir í skólann kl. 8 svo ef einhverjir vilja koma þangað fyrst þá er það velkomið.

Við fáum með okkur nesti fyrir alla á þriðjudeginum og þann dag ætlum við að fara í sund og svo á Amtsbókasafnið. Því þurfa nemendur að hafa með sér sundföt.Við komum svo heim kl 15:45

Á miðvikudag ætlum við að fá okkur að borða á Lindinni eftir skautana og þurfa nemendur að hafa með sér kr. 1000 þann dag.Áætluð heimkoma á miðvikudag er kl 13:45

 Ef nemendur eiga skauta er gott að hafa þá með en það er ekki nauðsynlegt.

 

                                  

 

 

 

 

21. nóvember 2005

Nú ætla nemendur grunnskólans að fara að safna fernum. Við höfum samið við Endurvinnsluna um að kaupa þær af okkur og peningurinn á að renna í sjóð  vorferðalags grunnskólans sem allir nemendur hans fara í. Við erum með þessu verkefni að slá tvær flugur í einu höggi. Þetta er liður í okkar framlagi til umhverfismála og jafnframt erum við að safna okkur peningum.

Þetta getum við þó ekki gert án ykkar aðstoðar og því óskum við eftir því að þið takið þátt í þessu með okkur og látið okkur hafa fernur.

Við munum safna fernunum annan hvern fimmtudag eftir hádegi og byrjum fimmtudaginn 24. nóvember.

Það verða teknar allar fernur, stórar sem smáar, ef þær eru með plasttappa þá þarf að klippa tappann af. Það þarf bara að skola fernurnar það er óþarfi að þurrka þær.

Gott er ef fernurnar eru brotnar vel saman. Þeir sem ekki verða heima þá daga þegar fernurnar eru sóttar geta sett þær í poka út fyrir dyrnar hjá sér.            

Með von um jákvæðar undirtektir

Nemendur og starfsfólk Grunnskólans í Hrísey

 

15. nóvember 2005

Umhverfisnefnd

Nú hefur ný umhverfisnefnd tekið til starfa, skoðið nánar undir Grænfána.

 


1. nóvember 2005

Foreldrakaffi

Foreldrakaffi í dag kl. 18. Allir velkomnir

 

 

17. október 2005
Í dag förum við í Árskógarskóla á tónleika hjá Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, við förum með 11 ferð og komum heim með eitt ferð.

 

September 2005
Foreldraviðtöl verða laugardaginn 17. september ( ekki 10. september eins og áður var auglýst) Nemendur koma heim með tímasetningar.

 

Mötuneyti
Þau leiðu mistök áttu sér stað á skólasetningu að sagt var að fæðið (morgun- og hádegisverður) kostuðu kr. 300  en er víst kr 335.  Morgunhressing kr. 55 og hádegisverður kr. 280. Ég biðst afsökunar á þessum mistökum. Skólastjóri

 

Ágúst 2005

Skólabyrjun - innkaupalistar

1. - 2. bekkur

Harðspjalda mappa (2 göt)

Teygjumöppur 2 stk

Tímaritagámur helst úr plasti/timbri

Plastmöppur 5 stk

Reiknisbók án gorma,          stórar rúður

Sögubókin mín 2 stk

Teikniblokk A4

1000 kr sem Þórunn notar         til að kaupa og eiga nóg af blýöntum, yddurum, litum skærum lími o.þ.h

3. 4. og 5. bekkur

Harðspjalda mappa (2 göt)

Teygjumöppur 2 stk

Skiptiblöð m/ 10 blöðum

Línustrikuð laus blöð eða gormabók

Rúðustrikuð laus blöð eða gormabók

Teikniblokk A3

Reglustika

Blýantur, strokleður og yddari

Trélitir

 

7. - 8. bekkur

Harðspjalda mappa (2 göt)

Teygjumöppur 2 stk

Skiptiblöð m/ 10 blöðum

Línustrikuð laus blöð eða gormabók

Rúðustrikuð laus blöð eða gormabók

Reglustika og gráðubogi

Blýantur, strokleður og yddari

Reiknivél

 

 

9. - 10. bekkur

Harðspjalda mappa (2 göt)

Teygjumöppur 2 stk

Skiptiblöð m/ 10 blöðum

Línustrikuð laus blöð eða gormabók

Rúðustrikuð laus blöð eða gormabók

Reglustika og gráðubogi

Blýantur, strokleður og yddari

Reiknivél

 

 

 

ATHUGIÐ nemendur í 1. 2. 3. 4. og 5. bekk. Gott væri fyrir ykkur að fjárfesta í ykkar eigin blokkflautu ef þið hafið tök á. Flauturnar er hægt að fá í Sunnuhlíð, Tónabúðinni. Í tónmenntatíma þurfi þið líka að koma með plastmöppu fyrir götuð blöð. Bestu kveðjur frá Kollu!!!

Ágúst 2005

Skólasetning

Miðvikudaginn 24. ágúst kl. 18:00 verður skólasetning í Grunnskólanum í Hríseyog eru allir velkomnir. Tökum vel á móti haustinu.

 

25. maí 2005

Grænfáni

Þau ánægjulegu tíðindi voru að berast okkur í dag að umsókn okkar um Grænfána hefur verið samþykkt og á næsta þriðjudag 31. maí þegar við slítum skólanum þá koma til okkar fulltrúar frá Landvernd til að afhenda okkur hann.

Húrra fyrir okkur!

 

25. maí 2005

 

Skólaslit

Þriðjudaginn 31. maí verður skólanum slitið. Athöfnin verður í kirjunni að vanda og síðan göngum við fylktu liði upp í skóla þar sem vorhátíð leikskólans fer fram, fólk getur skoðað sýningu á verkum nemenda í vetur og foreldrafélagið býður upp á  grillaðar pylsur.

 3. maí 2005

Foreldrafundur

 Miðvikudaginn 4. maí kl. 18:00 verður foreldrafundur í skólanum þar sem umræðuefnið er skólaferðalög.

Mætum sem flest til að ræða málin en áætlað er að fundinum ljúki fyrir 19:00.

 Kveðja úr skólanum

 

 

15. apríl 2005

Kæru nemendur og foreldrar.

Nú þegar farið er að vora eru nemendur farnir að koma í auknum mæli á reiðhjólum í skólann sem er í góðu lagi, nema fyrir þær sakir að hjálmanotkun er ekki eins algeng. Því langar okkur til að minna bæði foreldra og nemendur á mikilvægi þess að nota hjálma.

Kveðja starfsmenn skólans

 

 

15.apríl 2005

Árshátíð

Árshátíð grunnskólans í Hrísey verður fimmtudaginn 21. apríl (sumardaginn fyrsta) í Sæborg kl. 14

Allir velkomnir og við vonumst til að sjá sem flesta

Nemendur ganga í hús á miðvikudag og selja skólablaðið.

 

 

 

7. mars 2005

Kæru nemendur og foreldrar

Hér koma nokkur brot af því sem framundan er hjá okkur í skólanum fram að páskaleyfi.

Foreldrakaffi 9. mars kl. 17:00

Miðvikudaginn 9. mars verður foreldrakaffi í skólanum og verður boðið upp á léttan kvöldverð. Allir eru boðnir velkomnir en á dagskránni verður m.a. upplestrarkeppni 7. bekkinga en einn fulltrúi skólans verður valinn til þátttöku í Stóru upplestrarkeppninni sem verður í apríl á Akureyri.

Skíði fimmtudaginn 10. og 17. mars

Nú er komið að því að fara á skíði. Þetta árið verður okkur öllum  gert kleift að læra svolítið á skíði eða bretti. Farið verður með ferju kl. 13:00 fimmtudaginn 10. mars og 17. mars og komið heim 17:45. Rúta mun sjá um að koma okkur í Hlíðarfjall og aftur út á Sand. Þeir sem eiga skíði/bretti hafa það með sér en aðrir fá lánað (Hlíðarfjall borgar). Nemendur hafi með sér nesti.

Grænfáni

Nú er skólinn okkar á grænni grein og stefnir að því að flagga Grænfánanum í vor. Til að kynna fyrir foreldrum starfið í skólanum verður boðað til kynningar miðvikudaginn 16. mars. Þá er öllum foreldrum og þeim sem málið varðar boðið til „súpufundar” þar sem boðið verður upp á súpu á meðan kynningu nemenda stendur. Sem dæmi um verkefni sem hafa verið unnið í skólanum mætti nefna að föstudaginn 4. mars og 11. mars hafa nemendur endurunnið pappír, gert listaverk og rannsakað rusl í nágrenni okkar.

Skólaheimsókn 9.-10. bekkja 10. mars

VMA og MA hafa boðið okkur að koma í heimsókn fimmtudaginn 10. mars n.k. og munum við leggja af stað með ferjunni kl. 9:00. Þar munu nemendur fá leiðsögn um skólana og kynnast  því starfi sem þar fer fram.

Stærðfræðidagurinn 15. mars

Þann dag verður skólahald með óhefðbundum hætti. Nemendur þurfa að koma með tæki og tól sem notast alla jafna við stærðfræðikennslu.

Síðasti kennsludagur fyrir páskaleyfi er 18. mars.

Kveðja starfsmenn skólans

 

 

 

28 .2.2005| Hjördís Ýrr

Danssýning 1. mars

Þriðjudaginn 1. mars kl. 14:00 verður danssýning nemenda skólanna í Hrísey. Sýningin fer fram í Sæborg og eru allir velkomnir. Athugið breyttur danstími verður þennan dag en eldri nemar mæta í tíma kl. 12:00 og yngri 13:00 (tilbúnir á sýninguna)

 

7 .2.2005| Kennarar

Öskudagur

Starfsdagur hjá kennurum og nemendur í fríi.  Athugið! Búningaleiga verður í skólanum þriðjudaginn 8. feb. kl. 14 - 15

Á öskudaginn verður kötturinn sleginn úr tunnunni kl. 11 við búðina og ballið í Sæborg hefst kl. 16

 

5.2.2005| Kennarar

Foreldradagur í dag!

Foreldrar mættu í viðtöl hjá kennurum

 

 

4.2.2005| Jói

Heimasíða Grunnskólans tekin í notkun!

Þá er heimasíðan loksins komin í notkun.  Síðan verður uppfærð reglulega og verða tilkynningar settar inn á þessa síðu.