-
Hún langamma mín er lasin
Æ það ver leiðinlegt, hvað heitir hún?
Hún er sko amma hennar pabba sinn.
-
Ertu að teikna kött? Nei! þetta er björn og
köttar eru ekki með svona munn eins og bjarnar
-
Hjálp, það er ráðskjálfti (jarðskjálfti)
sagði lítil stúlka þegar kubbaturninn hennar hrundi
-
Getur þú núna telt (talið)
-
Oh, turninn hran (hrundi) sagði
drengur sem hafði byggt nokkra turna en þeir höfðu allir
hrunið hjá honum.
-
Kúrnar (kýrnar) sagði ein dama í
sveitinni
-
Ykkars gutu farið (gátu farið)
heyrðist úr heimiliskrók einn góðan veðurdag
-
Hey, ég kann ekki að smyðra! (smyrja)
sagði ung stúlka sem var ekki að nenna að læra að smyrja
brauðið sitt
-
Viljið þið opna geymslaugina (geymsluna)
var sagt við einn starfsmann á útisvæði
-
Hvað gerðirðu við hamborgara peningana sem
hamborgarinn gaf þér í gær koma frá einni dömu sem var í þessum
skemmtilega leik um frúnna í Hamborg
-
Þú ert alltaf með hárið svo loðið
(liðað-krullað) sagði ungur drengur við unga dömu sem sat við
hlið hans við morgunverðarborðið
-
Þetta er Gíravoffi (gíraffi)
sagði einn 3 ára drengur sem var að sýna okkur dýrin sem
hann var með
-
Eftir umræðu um fiskinn hennar Dísu matráðs sem okkur
fannst mjög góður sagði einn ungur drengur. Hún Dísa eldaði
fiskið (fiskinn)